ISRC Practical Guide

 

 

ISRC


ISRC - skráning á íslenskum hljóðritum.
Í framtíðinni mun sala svokallaðra efnislegra eintaka tónlistar (geislaplötum, kassettum, DCC o. s.frv) vega hlutfallslega minna af heildartekjum  bæði fyrir  hljómplötuframleiðendur og flytjendur.  Tekjurnar munu koma af annarri notkun tónlistar (útvarpi, diskótekum, notkun í verslunum o.s.frv.)

Einnig munu vonandi auknar tekjur koma erlendis frá, og þar mun ISRC til lengri tíma litið verða grundvöllur til skráningar notkunar af íslenskum upptökum á erlendri grundu og stuðla að nákvæmnari skiptingar af tekjum frá erlendum samtökum.

Hvað er ISRC - og hvernig virkar það?
ISRC þýðir International Standard Recording Code.  Staðallinn skráir stafræna upptöku, sem getur verið á CD, DCC eða MD, en einnig upptökur, sem eru til staðar í stafrænum tónlistargrunnum eins og þekkist í Bandaríkjunum, og sem hægt er að ná í gegnum gervihnött.  Hægt er að nota ISRC-staðalinn í stafrænum sendingum og þannig verður kleift að skrá notkun tónlistar í stafrænu útvarpi og tónlistargrunnum.

Stafrænar sendingar og aukið flæði upplýsinga um tónlist á alþjóðlegum mörkuðum gerir það mikilvægt, að tónlistin á stafrænum plötum innihaldi ISRC kóða.

I S R C - Skráning hljóðritana
ISRC - kóðinn er númer, sem skráir hvert brot af leikinni tónlist á stafrænt form.  Kóðinn (Staðallinn)  liggur saman með tímakóðanum og öðrum undirkóðum. Hann gæti litið svona út:

ISRC IS-EAA-00-02203

Þetta er dæmigerður ISRC-lykil.  “ISRC” er auðkenni.  Það merkir að ISRC kóðinn kemur þar á eftir.

1.  IS táknar heimaland framleiðendans.  IS er Ísland.   Landkóðanir útdeilast af  höfuðstöðvum ISRC í London.

2.  EAA táknar framleiðendann/útgáfufyrirtækið  EA er framleiðendakóðinn sem er úthlutað af ISRC í hverju landi (á Íslandi - SFH). Síðasti stafurinn A er tilgreining á útgáfumerki (label) innan fyrirtækis, þar sem hvert útgáfumerki getur fengið sinn bókstaf. Það gefur kost á 24 undirmerkjum þar sem ekki er hægt að nota bók-stafina Æ,Ö,Ð,Þ,I og O. Framleiðandi ákveður hvernig hann vill haga þessum merkingum.   

3.  00 - táknar upptökuárið.  Framleiðandi sér um að gefa þessar upplýsingar.  

4.  02203 - upptökunúmer.  022 táknar 22. framleiðsla útgefanda (árið2000) og  03 táknar þriðja lag á viðkomandi útgáfu.Það skal taka skýrt fram að ef einhver breyting verður á upptökunni sjálfri (“remix”) eða breyting á lengd lagsins þarf að fá nýtt ISRC númer. Það má semsagt aldrei nota aftur eldra ISRC númer.

Liðir 2 - 3 - og - 4  hér að ofan eru á ábyrgð framleiðendans.   Það hefur í för með sér  að framleiðandinn á sjálfur hafa gott skipulag á sínum upptökum og ISRC - kóðum.

 

 

 


Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda /  Eiðistorgi 17 170 Seltjarnarnes  /  Sími 561 8065