Úthlutunarreglur SFH
1.0. Fjármunir til úthlutunar.
Í úthlutunarsjóði flytjenda og framleiðenda eru þeir fjármunir sem eftir standa þegar rekstrarkostnaður hefur verið dreginn frá innheimtum tekjum. Í sjóðnum eru þær tekjur sem SFH hefur innheimt vegna opinberrar spilunar, innlendrar jafnt sem erlendrar tónlistar af hljóðritum og verndar njóta samkvæmt höfundalögum.
2.0. Sjóður til stuðnings flutningi og útgáfu hljóðrita.
Heimilt er að stofna sjóð til stuðnings tónlistarflutnings og framleiðslu hljóðrita sbr. 9. gr. samþykkta SFH . Framlag til hans getur numið 10% af ráðstöfunartekjum þegar rekstrarkostnaður hefur verið dreginn frá. Heimilt er einnig að nota þennan sjóð sem varasjóð ef aðstæður eru með þeim hætti að mati aðalfundar. Annast hvor deild innan SFH að jöfnu úthlutun úr sjóðnum í samræmi við ákvæði þessara úthlutunarreglna
Hafi þessum fjármunum ekki verið ráðstafað á þriggja ára tímabili frá því að innborgun átti sér stað skulu þeir fjármunir sem eftir standa koma að nýju til úthlutunar í samræmi við ákvæði 6.0 og 7.0 hér á eftir. Er að meginstefnu byggt á þvi að slíkir fjármunir renni að jöfnu til félagslegrar og eintaklingsbundinnar úthlutunar.
3.0. Flytjendadeild og framleiðendadeild.
Fjármunum sjóðanna skv. 1. og 2. gr. er skipt jafnt á hverju ári milli flytjendadeildar og framleiðendadeildar.
4.0. Einstaklingsbundin úthlutun.
Að frádregnum stuðningssjóði skal úthlutun allara tekna þar sem því verður við komið verða einstaklingsbundin og gildir það jafnt um flytjendadeild sem framleiðendadeild. Einstaklingsbundin úthlutun skal svo framarlega sem unnt er byggjast á áunnum réttindum miðað við spilunartíma í útvarpsstöðvum. Sérstakt punktakerfi gildir um úthlutun til hljómlistarmanna sbr. 5. gr. þessarar reglna. Gagnkvæmnissamningar eru gerðir við systurfélög erlendis um úthlutun vegna spilunar íslenskrar hljóðrita erlendis og erlendra hljóðrita hérlendis.
5.0. Punktakerfi vegna skiptingar flytjendatekna.\
Hlutverk | Heildarfjöldi flytjenda með sambærilegt hlutverk | Punktar |
---|---|---|
Aðalflytjandi, Gestalistamaður, Hljómsveitarmeðlimur | ||
1 | 7 | |
2 | 6 | |
3 | 4 | |
4 | 3 | |
5-8 | 2 | |
9 eða fleiri | 1 | |
Stjórnandi (Hljómsveitarstjóri) | 5 | |
Hljómlistarmaður í hljóðveri | ||
1 | 3 | |
2 |
1 hljóðfæri: 1.5 2 eða fleiri hljóðfæri: 2 |
|
3 eða fleiri |
1 hljóðfæri: 1 2 eða fleiri hljóðfæri: 2 |
|
Meðlimur í sinfóníu/kammersveit, Meðlimur í kór | ||
1-30 | 1 | |
31 eða fleiri | Pro rata | |
Upptökustjóri (Þarf að leika á eitt eða fleiri hljóðfæri) | ||
1 | 3 | |
2 | 2 | |
3 eða fleiri |
1 hljóðfæri: 1 2 eða fleiri hljóðfæri: 2 |
6.0. Félagsleg úthlutun vegna stuðningssjóðs sbr. 2.0 gr. og uppsafnaðra réttinda sbr. 9.0 gr. þessara reglna.
Í þeim tilvikum þar sem ekki er unnt að framkvæma einstaklingsbundna úthlutun vegna þess m.a. að rétthafar finnast ekki, réttindi eru fyrnd eða af öðrum sambærilegum ástæðum er heimilt að viðhafa félagslega úthlutun. Skal hvor deild innan SFH annast þá úthlutun.
Stjórn framleiðendadeildar annars vegar og stjórn flytjendadeildar hins vegar hafa umsjón með úthlutun hvorrar deildar.
Öllum flytjendum óháð aðild að SFH er heimilt að sækja um félagslega úthlutun úr hlutdeild flytjenda . Fé til félagslegra verkefna hjá flytjendadeild skal m.a. vera háð eftirfarandi skilyrðum:
a. verkefni sem efla mun skilning á menningargildi lifandi hljómlistar og annars listflutnings.
b. verkefni er lúta að réttindagæslu og starfsumhverfi flytjenda.
c. námskeiðshald.
d. styrkir til menntunar.
e. skiplagning samstarfs við aðra aðila um framangreinda liði.
f. stuðningur við tónleikahald og aðra sviðsframkomu.
g. stuðningur við útgáfu hljómfanga og kynningarstarfsemi sem tengist listflutningi.
Undir félagsleg verkefni hjá framleiðendadeild falla verkefni sem nýtast greininni í heild og stjórn framleiðendadeildar metur sem slík, en dæmi um þess konar verkefni eru t.d. kynningarátök á breiðum grundvelli, aðgerðir til að sporna gegn heimildarlausri notkun á tónlist og útrásarverkefni.
7.0. Úthlutunarreglur vegna stuðningssjóðs sbr. 2.0 gr. og uppsafnaðra réttinda sbr. 9.0. gr. þessara reglna.
a. Sækja skal skriflega um styrk til viðkomandi sjóðsstjórnar SFH og geta þess ítarlega í hvaða skyni sótt er um styrkinn. Sjóðstjórn er heimilt að leita eftir nánari upplýsingum.
b. Stjórn sjóðsins yfirfer umsóknir, og gerir síðan ákveðnar tillögur um styrkveitingar. Á aðalfundi skal kjósa þrjá fulltrúa í stjórn úthlutunarsjóðs SFH. Kjörgengi hafa allir sem eru aðilar að SFH.
c. Úthluta skal a.m.k. einu sinni á ári vegna uppsafnaðra réttinda sem eru eldri en þriggja ára og skal það auglýst á heimasíðu SFH, í vefritum, félagspósti eða á annan opinberan hátt.
d. Styrkþegi skal gefa stjórn sjóðsins nákvæma skýrslu að verkefni loknu.
e. Setja skal sérstakar reglur um réttindi aðila sem áður hafa sótt um styrki og fengið greidda styrki til félagslegra verkefna eða fengið sínum réttindum úthlutað einstaklingsbundið. Þrátt fyrir að einstakur flytjandi hafa fengið úthlutað einstaklingsbundið kemur það ekki í veg fyrir að hann geti sótt um styrk til verkefnis skv. gr. 5.0 hér að ofan.
8.0. Lágmarksúthlutun.
Heimilt er að miða lágmarksúthlutun til hvers rétthafa í framleiðendadeild við kr. 20.000, en getur safnast upp í 3 ár þar til þeirri fjárhæð er náð. Heimilt er að lágmarksúthlutun til hvers rétthafa í flytjendadeild sé kr. 10.000, og getur jafnframt safnast upp í 3 ár þar til þeirri fjárhæð er náð.
9.0. Fyrning réttinda.
Ef rétthafi finnst ekki eða gerir ekki kröfu til áunninna réttinda þegar liðin eru 3 ár frá þeim áramótum er rétthafi gat krafist úthlutunar þeirra tekna sem urðu til hjá SFH, IHM eða öðrum sambærilegum aðilum er viðkomandi fjármunum ráðstafað aftur til úthlutunar og getur hvor deild ákveðið hvernig þeim fjármunum er úthlutað. Hjá flytjendadeild mun þessum fjármunum ráðstafað að jöfnu í einstaklingsbundna úthlutun og félagslega sbr. 6. og 7. gr. þessara reglna. Af öryggisástæðum er þó heimilt að til staðar sé varasjóður sem staðfestur er á aðalfundi hvers árs sem gæti t.d. verið notaður til að verjast óvæntum áföllum.
10.0. Ávöxtun fjámuna.
Skylt er að ávaxta eignir sjóðins á sem tryggastan hátt. Heimilt er að ávaxta eignir sjóðsins á bankareikningum og í ríkisskuldabéfum, en óheimilt að fjárfesta í hlutabréfum eða sambærilegum verðbréfum.
11.0. Skýrsla úthlutunarnefnda.
Stjórnir úthlutnarnefnda beggja deilda ber árlega að gera nákvæma skýrslu um úthlutunarstörf sín, svo meta megi árangur nefndanna. Að jafnaði skulu úthlutunarnefndir óska upplýsinga frá styrkþegum hvernig fjármunum hefur verið ráðstafað. Skýrsla þessi ásamt upplýsingum um ráðstöfun fjármuna skal vera hluti af úthlutnargögnum SFH í tengslum við gerð ársreikninga og jafnframt birt í gagnsæisskýrslu hvers árs. Séu styrkir mjög háir til ákveðinna verkefna getur úthlutarnefnd falið löggiltum endurskoðanda að skoða bókhald viðkomandi aðila í því skyni að gera sér glögga grein fyrir hvernig fjármunum hefur verið varið. Ef vanhöld verða á framangreindri upplýsingagjöf er stjórn SFH heimilt að halda eftir úthlutun til viðkomandi aðila þar til upplýsingaskyldu hefur verið fullnægt að mati stjórnar.
12.0. Breytingar á reglum.
Breytingar á reglugerð þessari skal bera upp á aðalfundi SFH og þurfa 2/3 hluta atkvæða til þess að þær öðlist gildi.