Heimildarákvæði fyrir starfsemi SFH er að finna í 47. grein höfundalaga nr 73/1972.
Samþykktir SFH eru frá stofnun árið 1973, síðast breytt árið 2011 og styðjast við framangreint ákvæði.
Grannréttindi eða grenndarréttindi hafa þau réttindi verið nefnd sem m.a eiga við flytjendur og um framleiðendur ofl. og eru hliðstæð réttindi og réttindi höfunda.
Sérstakur kafli í íslensku höfundalögunum fjallar um þessi réttindi.
Tekin hafa verið saman upplýsingar um þessi réttindi sem finna má hér að neðan auk upplýsinga um samþykktir SFH, heimildarákvæði SFH, en þar er einnig að finna íslensku höfundalögin í heild.